| Leitarvélin | Forsíða » Landsþjónusta » Neyðarsímanefnd

Neyðarsímanefnd

Undirnefnd Símaþjónustu rekur upplýsingalínu fyrir Narcotics Anonymous, sem hjálpar fíklum og öðrum í samfélaginu að finna félagsskap okkar fljótt og örugglega. Sjálfboðaliðar símalínunnar eru oft fyrsti tengiliður milli samfélagsins í heild og N.A. félagsskaparins. Af þessari ástæðu er það afar mikilvægt að vandleg íhugun liggi að baki störfum þessarar nefndar.

Undirnefndir símaþjónustu hafa hver sinn hátt á skipulagningu við störf nefndarinnar, allt eftir því hvaða svæði á í hlut. Á sumum svæðum eru undirnefndir Almannatengsla og Símaþjónustu rekin sem ein heildstæð nefnd. Á smærri svæðum er símaþjónusta einfaldlega áframsending á stök símanúmer sem tilheyra einstaka meðlimum N.A. Á stærri landssvæðum, eru sumstaðar rekin tölvustýrð kerfi sem leiða innkomin símtöl áfram til sérstakra deilda eða þjónustufulltrúa sem geta veitt viðeigandi upplýsingar. Ef þörf er nánari upplýsinga um störf Undirnefndar Símaþjónustu, vinsamlegast flettið upp í handbókinni A Guide to Phoneline Service, sem fáanleg er á vegum Undirnefndar Símaþjónustu eða hafið samband við Alþjóðaskrifstofu N.A. samtakanna.

Athygli skal vakin á því að hér á Íslandi er við störf Símanefnd, en númer neyðarsíma N.A. á Íslandi er 661 2915. Neyðarsíminn er opinn allan sólarhringinn og tekur við fyrirspurnum frá þeim sem vilja afla sér frekari upplýsinga eða þurfa á aðstoð að halda. Til að afla þér frekari upplýsingar um þjónustu Símanefndar, bendum við vinsamlegast á netfang Svæðisþjónustu N.A. á Íslandi.
nai@nai.is

Einnig er hægt að sækja upplýsingar á landsþjónustufundi NA samtakanna á íslandi, sen eru haldnir 2. laugardag hvers mánaðar, í Gula Húsinu við tjarnargötu, kl. 17:00