| Leitarvélin | Forsíða » Landsþjónusta » Sjúkrahús og stofnanir
Sjúkrahús og stofnanir

Undirnefnd Sjúkrahúsa og Stofnanna útvegar fundarmenn til að bera boðskap N.A. samtakanna til fíkla sem hafa oftar en ekki enga aðra möguleika á því að heyra boðskap batans. Fastir meðferðarfulltrúar sjá um að eiga samskipti við skjólstæðinga á meðferðarheimilum, geðsjúkrahúsum og göngudeildum. Fastir fangelsisfulltrúar sjá um samskipti við fanga sem afplána í fangelsum, afplánunarstofnunum og réttargeðdeildum. Hægt er að nálgast handbókina Hospitals & Institutions hjá Undirnefnd S & S eða með því að skrifa til Alþjóðaskrifstofu N.A. samtakanna en þar er útskýrt til fullnustu hvernig á að reka fundi, kjósa fulltrúa, eiga samskipti við tengiliði stofnanna og skipuleggja störf nefndarinnar.

Umfang þeirrar þjónustu sem S & S nefnd á hverju svæði rekur, veltur á nokkrum þáttum: sá fjöldi meðferðarstofnanna og fangelsa sem eru staðsett á svæðinu, sá fjöldi félaga innan N.A. sem hefur áhuga á þeirri þjónustu sem S & S býður og þeirri sameiginlegu reynslu sem samfélag N.A. á hverju svæði býr yfir.

Þær skyldur sem S & S gegnir spanna stundum einnig þær skyldur sem undirnefnd Almannatengsla hefur. Af þessari ástæðu, hvetjum við undirnefndir S & S og A.T. til árangursríkra samskipta og samstarfs. Á sumum svæðum, senda S & S og A.T. stundum í sameiningu einn eða tvo meðlimi á fundi hvers annars til að viðhalda samskiptum, í þeim tilgangi að draga úr möguleikanum á árekstrum sem geta myndast á þessum stigum þjónustu.

Athygli skal vakin á því að hér á Íslandi er við störf S & S nefnd og þjónustar nefndin fjölmargar meðferðarstofnanir. Til að afla þér frekari upplýsingar um þjónustu S & S nefndarinnar, eða óskir þú eftir að nefndin kynni þjónustu sína fyrir meðferðarstofnun þinni, bendum við vinsamlegast á netfang Svæðisþjónustu N.A. á Íslandi.
nai@nai.is

Einnig er hægt að sækja upplýsingar á landsþjónustufundi NA samtakanna á íslandi, sen eru haldnir 2 og 4 laugardag hvers mánaðar, í Gula Húsinu við tjarnargötu, kl. 17:00

 

Öllum áhugasömum meðlimum N.A. á Íslandi er velkomið að sitja fundinn.