Að lifa prógrammið
Það sem virkaði fyrir okkur: N.A. dagleg reikniskil
Tilgangur þessara daglegu reikniskila er að halda skrá um hver við erum og hvað við erum að gera í dag.
Reyndu að svara öllum spurningunum, hvern einasta dag. Hafðu svör þín
eins einföld og heiðarleg og þú getur. Ef þú missir úr dag, reyndu þá
ekki að bæta upp fyrir það seinna.
Takmarkaðu svör þín og hugðarefni við undanfarinn sólarhring og ljúktu við spurningarnar í lok hvers dags.
Ef þú vilt deila einhverju af þessum reikniskilum, leggjum við til að þú gerir það munnlega.
Mundu að dagleg reikniskil eru ekki prófraun; það eru ekki til nein
rétt eða röng svör. Þú skalt forðast að komast í uppnám ef þú hefðir
getað gert betur eða ef þér mistekst að standast eigin væntingar. Mundu
að þetta er prógramm vaxtar og bata. Ef þú varst edrú í dag, hefur þér
tekist að gera eitthvað rétt.
Í dag, munu hugsanir mínar dvelja við bata minn, ég mun lifa og njóta lífsins án þess að nota fíkniefni.
Er ég edrú í dag?
Hvað hef ég gert öðruvísi?
Hafði sjúkdómurinn völd yfir lífi mínu í dag?
Ef svo er, hvernig þá?
Hvað gerði ég í dag, sem ég vildi óska að ég hefði ekki gert?
Hvað lét ég ógert, sem ég vildi óska að ég hefði gert?
Var ég góð/ góður við sjálfan mig í dag?
Hvernig þá?
Var dagurinn góður?
Var ég hamingjusöm/ hamingjusamur?
Var ég æðrulaus?
Í dag, mun ég treysta á einhvern innan N.A. sem hefur trú á mér og vill hjálpa mér í bata mínum.
Talaði ég við trúnaðarmanneskju mína í dag?
Fór ég á fund í dag?
Hvar?
Deildi ég af reynslu minni, styrk og vonum?
Hvaða einstaklingar eru í lífi mínu í dag, sem ég treysti?
Hver leggur traust á mig í dag?
Í dag, mun ég halda prógrammi, ég mun fylgja því eftir bestu getu.
Las ég í bókmenntum okkar í dag?
Hvaða spor vann ég í sífellu?
Viðurkenndi ég vanmátt minn í dag?
Var ég fær um að leggja traust mitt á æðri Mátt minn í dag?
Hvað lærðist mér um sjálfa / sjálfan mig í dag?
Gerði ég einhverjar yfirbætur í dag?
Skulda ég enn einhverjar yfirbætur?
Viðurkenndi ég mistök mín fyrir einhverjum í dag?
Hafði ég áhyggjur af gærdeginum eða morgundeginum?
Get ég sætt mig við sjálfa / sjálfan mig eins og ég er í dag?
Í dag, með hjálp N.A. mun ég reyna að fá betri innsýn í líf mitt.
Fannst mér sem ég væri hluti af heild mannkyns í dag?
Dvaldi ég við einhverjar þráhyggjur í dag?
Hvað hefur Guð gefið mér í dag, sem ég get verið þakklátur fyrir?
Gerði ég eitthvað sem olli sjálfum mér eða öðrum skaða í dag?
Ef svo er, hvað þá?
Er ég reiðubúinn að breytast í dag?
Bað ég eða hugleiddi í dag?
Hvaða áhrif hafði þetta á líf mitt?
Hvaða andlegu meginreglur tókst mér að iðka í lífi mínu í dag?
Var mér mikilvægast, af öllu því sem gerist í lífi mínu í dag, að vera edrú?
Í dag, mun ég vera óhræddur. Hugsanir mínar munu snúast um hin
nýju tengsl mín við fólk sem er ekki að nota og hefur fundið nýja leið
til að lifa. Eins lengi og ég fylgi þeirri leið, hef ég ekkert að
óttast.
Gaf ég af sjálfri / sjálfum mér í dag án þess að ætlast til einhvers í staðinn?
Var ótti í lífi mínu í dag?
Fann ég fyrir yfirdrifinni gleði eða sársauka?
Hringdi ég í eða heimsótti einhvern í prógramminu í dag?
Bað ég fyrir velferð annarrar manneskju í dag?
Var ég sátt / sáttur í dag?
Var ég verið friðsæl / friðsæll í dag?
Minnti ég mig stöðugt á að ég hef öðlast val í dag?
Góði Guð
sýndu mér hvað ég hef gert rétt og rangt í dag.
Sýndu mér hvernig ég get breytt lífi mínu til hins betra
og þjónað þínum vilja á morgun.