| Leitarvélin | Forsíða » Lesefni » Bæklingar » Hvað er NA?

Hvað er Narcotics Anonymous?

N.A. er hagnaðarlaus félagsskapur eða samfélag karla og kvenna sem hafa átt í miklum erfiðleikum með fíkniefni. Við erum fíklar á batavegi sem hittast reglulega svo við megum hjálpa hvert öðru að haldast edrú.

þetta er prógramm sem krefst algers bindindis frá öllum fíkniefnum. Eina skilyrðið til inngöngu er löngun til að hætta að nota. Við leggjum til að þú haldir opnum huga og gefir sjálfum þér tækifæri. Prógramm okkar byggir á meginreglum, rituðum á svo einfaldan hátt að okkur reynist auðvelt að fylgja þeim í daglegu lífi.

Mikilvægi þeirra er fólgið í þeirri einföldu staðreynd að þær virka.

N.A. setur enga skilmála. Við tengjumst engum öðrum samtökum, við krefjumst engra félagsgjalda né aðgangseyris, engin plögg þarf að árita, engin loforð þarf að gefa neinum. Við rekum engin tengsl við neina stjórnmála-, trúar- eða lögregluhópa og erum ekki undir eftirliti á neinn hátt. Hver sem er getur gengið til liðs við okkur og skiptir aldur, kynþáttur, kynferði, trúarbrögð eða skortur á trúarbrögðum engu máli.

Við höfum engan áhuga á því hvað eða hversu mikið þú notaðir eða hver sambönd þín voru, hvað þú hefur gert og hversu mikið eða lítið þú hefur; áhugi okkar byggir einungis á því hvernig þú vilt taka á vanda þínum og hvernig við getum hjálpað. Nýliðinn er mikilvægasta manneskja sérhvers fundar, því við getum einungis haldið því sem við höfum fengið með því að gefa það áfram.

Reynsla innan hópa okkar hefur kennt okkur að þeir sem halda áfram að koma reglulega á fundi okkar, haldast edrú.