| Leitarvélin | Forsíða » Lesefni » Bæklingar » Þjónusta við Sjúkrahús og Stofnanir og N.A. félaginn

Þjónusta við Sjúkrahús og Stofnanir og N.A. félaginn

Ófáum félögum Narcotics Anonymous hefur þótt þjónusta við Sjúkrahús og Stofnanir afar mikilvægur þáttur í persónulegu bataferli þeirra. þeir félagar okkar, sem eru virkir í S & S þjónustu, eru afar mikilvægir félagsskap okkar. Skuldbinding við S & S þjónustu er ein þeirra fjölmörgu leiða sem hægt er að velja, til að tengjast þjónustu innan N.A. og gerir okkur kleift að finnast hluti af félagsskapnum.

Við vitum að virk fíkn leiðir til fangelsunar, stofnanna og dauða. Einnig, að megintilgangur N.A. samtakana er að bera boðskap batans til fíkilsins sem enn þjáist. Það er því engin furða að það eitt að bera boðskap N.A. batans á sjúkrahús og stofnanir skuli vera eitt af forgangsverkum okkar. Félagar N.A. hafa stutt þessa trú dyggilega með því að stofna Sjúkrahús og Stofnanir (S & S) nefndir víðs vegar um heiminn.

Samt sem áður hafa einhverjir félagar innan N.A. verið tregir til að tengjast S & S þjónustu, vegna þess að þeir hafa aldrei verið lagðir inn, handteknir eða vistaðir á stofnunum. Með persónulega reynslu okkar og viðeigandi undirbúning í farteskinu, erum við öll jafn fær um að bera boðskap batans.

Þessum bæklingi er ætlað að vera stuttleg kynning á S & S þjónustu Narcotics Anonymous og er ætlað að hvetja félaga til þess að bjóða sig fram til þessa tækifæris til að þjóna.

Hvað er S & S fundur?

Tilgangur S & S fundar er að bera boðskap batans til fíkilsins sem ekki enn hefur óhindraðan aðgang að hefðbundnum fundum innan Narcotics Anonymous. S & S fundum, nema þeim sem eru haldnir á langtímameðferðarstofnunum, er ætlað að kynna þeim fíklum sem sækja fundina, grundvallaratriði N.A. prógrammsins.

Til að öðlast skýra mynd af S & S fundi, er mikilvægt að læra um þjónustuskipan okkar. S & S fundur er venjulega þjónusta sem veitt er af Svæðisþjónustunefnd eða undirnefnd S & S. Þessir fundir eiga sér stað á sjúkrahúsum, meðferðarstöðum, fangelsum og meðferðarheimilum fyrir ungt fólk. Fremur en að vera N.A. hópur, er mikilvægt að S & S fundur sé alltaf haldinn í samráði við undirnefnd S & S.

Hvernig tek ég þátt?

Svæðisbundin S & S undirnefnd er miðstöð allrar skipulagningar og ákvarðanna. Þetta er tilvalinn staður til að byrja! það fyrsta sem þú gerir er að mæta á svæðisbundinn S & S undirnefndarfund og sitja þar kynningu fyrir nýja og áhugasama meðlimi. Þessi kynning gerir félögum okkar kleift að afla upplýsinga og vitneskju um þann edrútíma sem krafist er, svo viðkomandi geti sinnt þjónustu innan S & S. Á þessum fundum eru félagar einnig valdir til að bera boðskap okkar inn á stofnanir. Venjulega er næsta skref fólgið í því að mæta á S & S fund sem áhorfandi. Gegnum þetta ferli öðlast félagar grunnskilning á S & S þjónustu og ákveða á hvaða hátt þeir vilja þjóna.

Hvers vegna á ég að taka þátt?

Þjónusta Sjúkrahúsa og Stofnanna býður fíklum upp á tækifæri til að sýna þakklæti sitt, standa undir ábyrgð og deila boðskap N.A. án nokkurra væntinga. Þetta er einnig afar mikilvægt verkfæri sem hjálpar okkur að haldast edrú og fær okkur til að koma aftur. S & S boðskapurinn er sá hinn sami og N.A. boðskapurinn: „Að hver fíkill, hvaða fíkill sem er, geti hætt að nota fíkniefni, misst löngunina til að nota og fundið nýja leið til að lifa.“ Gjöfin sem við deilum er von og frelsi frá virkri fíkn gegnum prógramm Narcotics Anonymous. Allir félagar N.A. sem langar að bera þennan boðskap eru hvattir til að komast í samband við S & S þjónustuna. Það eru margar leiðir til að þjóna innan Narcotics Anonymous og mörgum okkar hefur þótt S & S þjónusta mest gefandi hluti af bata okkar. Við vonum að þessi bæklingur muni hvetja þig til að tengjast S & S þjónustunni og uppskera þessi verðlaun sjálfur!