Þessi bæklingur var ritaður til að svara einhverjum spurningum þinna,
sem varða prógramm Narcotics Anonymous. Boðskapur okkar er afar
einfaldur: Við höfum fundið nýja leið til að lifa lífinu án þess að
nota fíkniefni og það er okkur sönn ánægja að deila þeirri leið með
hverjum þeim sem á í vandræðum með fíkniefni.
Velkominn til Narcotics Anonymous
Vertu velkominn á þinn fyrsta N.A. fund. N.A. býður fíklum upp á leið
til að lifa án fíkniefna. Hafðu engar áhyggjur þó þú sért ekki viss um
að þú sért fíkill; haltu bara áfram að koma á fundi okkar. Þú færð
allan þann tíma sem þú þarfnast, til að gera upp hug þinn.
Ef þú ert eins og mörg okkar voru, þegar við mættum á fyrsta N.A.
fundinn okkar, getur verið að þú sért ansi taugaveiklaður og haldir
jafnvel að allir á fundinum séu að velta þér fyrir sér. Ef svo er,
máttu vera viss um að þú ert ekki sá eini. Mörg okkar hafa upplifað það
sama. Það hefur verið sagt, „Ef magi þinn er allur í hnút, þá ertu
sennilegast á réttum stað.†Við segjum oft að enginn gangi inn um dyr
okkar fyrir misgáning. Þeir sem ekki eru fíklar, eyða ekki tímanum í að
velta því fyrir sér hvort þeir séu fíklar. Þeir hugsa ekki einu sinni
um það. Ef þú ert að velta því fyrir þér hvort þú sért fíkill eða ekki,
gætir þú vel verið slíkur. Gefðu sjálfum þér einfaldlega tíma til að
hlusta á okkur deila því hvernig það hefur verið hjá okkur. Jafnvel
heyrir þú eitthvað sem hljómar kunnuglega fyrir þér. Það skiptir engu
máli hvort þú notaðir sömu fíkniefnin og aðrir minnast á. það er ekki
mikilvægt hvaða fíkniefni þú notaðir; þú ert velkominn hingað ef þig
langar að hætta að nota. Flestir fíklar upplifa afar svipaðar
tilfinningar, en einmitt með því að beina athyglinni að því sem við
eigum sameiginlegt, fremur en því sem aðskilur okkur, getum við komið
hvert öðru til hjálpar.
Þú kannt að vera vonlaus og hræddur. Þú kannt að halda að þetta
prógramm, líkt og svo margar aðrar aðferðir sem þú hefur reynt, muni
ekki virka. Jafnvel heldur þú að það geti virkað fyrir einhvern annan,
en ekki fyrir þig, því þér finnst þú vera frábrugðinn okkur. Flestum
leið okkur svona þegar við komum fyrst til N.A. Einhvern veginn vissum
við að við gátum ekki haldið áfram að nota fíkniefni, en við vissum
ekki hvernig átti að hætta eða vera edrú. Við vorum öll hrædd við að
sleppa því sem var orðið okkur svo mikilvægt. það er því léttir að
uppgötva að eina skilyrðið fyrir inngöngu í N.A. er löngun til að hætta
að nota.
Flest okkar voru í fyrstu tortryggin og hrædd við að reyna nýjar
aðferðir við að gera hlutina. það eina sem við vorum með sanni viss um
var, að gömlu aðferðirnar virkuðu bara alls ekki. Jafnvel eftir að við
urðum edrú, breyttust hlutirnir ekki strax. Oftar en ekki virtust
daglegar athafnir okkar eins og að aka bifreið eða að nota símann,
ógnvekjandi og skrýtið, líkt og við hefðum breyst í einhvern sem við
sjálf þekktum ekki. Það er hér sem félagsskapurinn og stuðningur
annarra edrú fíkla kemur að raunverulegu gagni og við byrjum að leita
til annarra eftir þeirri hughreystingu sem við svo nauðsynlega
þörfnumst.
Þú kannt nú þegar að hugsa: „Já, en…“ eða „Hvað ef…?“ Engu að
síður og það jafnvel þó þú efist enn, getur þú stuðst við þessar
einföldu útlistingar í byrjun: Farðu á eins marga N.A. fundi og þú
getur og safnaðu lista af símanúmerum innan N.A. sem þú getur hugsað
þér að nota reglulega, sérstaklega þegar löngunin til að nota fíkniefni
verður sterk. Freistingin er ekki eingöngu bundin þeim dögum og tíma
sem fundir standa yfir. Við erum edrú í dag vegna þess að við teygðum
okkur eftir hjálp. það sem hjálpaði okkur getur hjálpað þér. Vertu þess
vegna ekki hræddur við að hringja í annan fíkil í bata.
Eina leiðin til að snúa ekki aftur til virkrar fíknar er að taka ekki
fyrsta skammtinn. það er fíklum eðlilegt að nota fíkniefni. Flest okkar
þurftu að undirgangast stórfelldar líkamlegar, tilfinningalegar og
andlegar breytingar svo okkur yrði gert kleift að halda okkur frá skap-
og hugbreytandi efnum. Tólf Reynsluspor N.A. bjóða okkur upp á leið til
að breytast. Eins og einhver sagði: „Þú getur sennilegast orðið edrú af
því einu að sækja fundi, en ef þig langar að haldast edrú og upplifa
bata, verður þú að ástunda Tólf Reynslusporin.“ Þetta er meira en svo
að við getum gert þetta einsömul. Innan félagsskapar N.A. styðjum við
hvort annað í tilburðum okkar til að læra og iðka nýja leið í lífinu,
sem viðheldur heilbrigði okkar og heldur okkur fíkniefnalausum.
Á fyrsta fundi þínum, muntu hitta fólk með mislangan edrútíma. Þú kannt
að velta fyrir þér hvernig þau gátu verið edrú í svo langan tíma. Ef þú
heldur áfram að koma á N.A. fundi og ert edrú, fer þér að skiljast
hvernig það virkar. Það er gagnkvæm virðing og umhyggja sem ríkir milli
edrú fíkla vegna þess að við höfum öll þurft að yfirstíga vansæld
fíknarinnar. Við elskum og styðjum hvort annað í bata okkar. N.A.
prómgrammið samanstendur af andlegum meginreglum sem okkur hefur lærst
að hjálpa okkur í edrúmennskunni. Einskis verður krafist af þér, en þú
munt fá fjölmargar ábendingar. Þessi félagsskapur býður upp á tækifæri
fyrir okkur til að gefa þér það sem við höfum öðlast; nýja leið til að
lifa. Við vitum að við verðum að „gefa það áfram, til að halda því.“
Svo vertu velkominn! Við erum ánægð að þú skulir hafa komist hingað og
vonum að þú ákveðir að vera um kyrrt. Það er mikilvægt fyrir þig að
vita að hér á N.A. fundum munt þú heyra minnst á Guð. Hér erum við að
tala um Mátt, æðri okkur sjálfum, sem gerir það kleift sem virtist
ókleift. Við fundum þann Mátt hér innan N.A., í prógramminu, á fundunum
og í fólkinu hér. Þetta er sú andlega meginregla sem hefur gert okkur
kleift að lifa lífi án fíkniefna einn dag í einu; og þegar dagurinn
hefur virst of langur, fimm mínútur í einu. Saman getum við gert það
sem við gátum ekki einsömul. Við bjóðum þér að nýta þér styrk okkar og
vonir þar til þú hefur fundið eitthvað upp á eigin spýtur. Það kemur að
þeim tíma að þú kannt að vilja deila með einhverjum því, sem svo
frjálslega var gefið þér.