| Leitarvélin | Forsíða » Lesefni » Bækur » NA Bókin » Merkið okkar

MERKIÐ OKKAR

 

Einfaldleiki er lykillinn að merkinu okkar og er lýsandi fyrir það hvað félagsskapurinn er einfaldur. Finna má hvers konar dulrænar tengingar við þessar einföldu línur, en í huga félagsskaparins er merking þeirra auðskiljanleg.

Ytri hringurinn táknar alheimsprógramm sem inniheldur allt og rúmar alla einstaklinga í bata, hvernig sem þeir kunna að birtast.

Ferningurinn er greinilegur og auðskilinn, en í merkinu eru ósýnilegir þættir. Ferningurinn táknar grunninn; góðvild sem er grundvöllur félagsskaparins og félaganna í samtökum okkar. Góðvild kemur best fram í þjónustu, góð þjónusta er í því falin "að gera það sem rétt er af réttri ástæðu". Þegar góðvildin knýr bæði einstaklinginn og félagsskapinn áfram erum við algerlega heil og frjáls. Sennilega verður það síðasta sem við verðum frjáls undan skömmin yfir því að vera fíkill.

Ferningurinn myndar fjórar hliðar píramída. Þær tákna sjálfið, samfélagið, þjónustu og Guð. Tindurinn er frelsið. Allt er þetta nátengt þörfum og markmiðum fíkilsins sem leitar bata og tilgangi félagsskaparins, sem er að láta batann standa öllum til boða. Því stærri sem grunnurinn er (eftir því sem við vöxum, okkur fjölgar og eining okkar styrkist) þeim mun breiðari verða hliðar píramídans og þeim mun hærri verður frelsistindurinn.

 

(skýringar við teikningu gegnt bls. ix:

Freedom = frelsi

Self = sjálfið

God = Guð

Goodwill = góðvild

Society = samfélagið

Service = þjónusta

Universal Program = Alheimsprógramm)