| Leitarvélin | Forsíða » Lesefni » Lesefni deilda » 12 Erfðavenjur

12 erfðavenjur

Við höldum því sem við höfum fengið með árverkni og rétt eins og einstaklingar
öðlast frelsi með sporunum tólf öðlast hóparnir frelsi með erfðavenjunum.
Svo framarlega sem tryggðarböndin sem sameina okkur eru sterkari en öflin sem gætu sundrað okkur fer allt vel.

  1. Sameiginleg velferð okkar ætti að vera í fyrirrúmi, bati hvers og eins er undir einingu N.A. samtakanna kominn.
  2. Yfir hópum okkar er aðeins einn stjórnandi - kærleiksríkur Guð eins og hann birtist í samvisku hópsins. Leiðtogar okkar eru aðeins dyggir þjónar; þeir stjórna ekki.
  3. Eina skilyrðið fyrir inngöngu er löngun til að hætta neyslu.
  4. Hver hópur ætti að vera sjálfráða nema í málefnum sem varða aðra hópa eða N.A. í heild.
  5. Hver hópur á sér aðeins eitt meginmarkmið - að flytja fíklum sem enn þjást boðskapinn.
  6. N.A. hópur ætti aldrei að lýsa yfir stuðningi við neina skylda aðstöðu eða önnur málefni, ljá þeim nafn sitt eða styðja þau fjárhagslega til að fjármál, eignir og upphefð fjarlægi okkur ekki meginmarkmiði okkar.
  7. Hver N.A. hópur ætti að standa algerlega undir sér sjálfur og hafna utanaðkomandi fjárframlögum.
  8. N.A. skal ávallt vera samtök áhugafólks, en þjónustumiðstöðvar okkar mega ráða launað starfsfólk.
  9. N.A. samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja, en við megum mynda
    þjónusturáð eða nefndir sem eru ábyrg gagnvart þeim sem þau þjóna.
  10. N.A. samtökin hafa enga skoðun á óviðkomandi málefnum, þess vegna ætti aldrei að draga nafn N.A. samtakanna inn í almenn ágreiningsefni.
  11. Kynning okkar út á við byggist á aðlöðun frekar en áróðri; við gætum ávallt nafnleyndar í fjölmiðlum.
  12. Nafnleynd er andlegur grunnur allra erfðavenja okkar og minnir okkur á að láta grundvallarreglur ávallt vega þyngra en einstaklinga.